Archive for October, 2009

Langt síðan síðasta færsla kom um litla íþróttaálfinn í Bólstaðarhlíðinni og ég biðst afsökunar á því. Síðan ég skrifaði síðast er hann kominn á fullt í allskonar aktivítet-um í nýja leikskólanum, Stakkaborg, þar má t.d. nefna íþróttir og könnunarleikinn. Ívar Nói er farinn að apa sjónvarpsáhuga föður síns eftir og biður nú um að fá að horfa á “bæ” (Latabæ) eða “igga bæ” (Sigga í Latabæ) á hverjum morgni þegar hann vaknar (kl 6:00). Annað sjónvarpsefni sem vekur áhuga eru “kakkar” (Krakkarnir í Söngvaborg 3 sem er búið að renna of oft í gegnum dvd spilarann) og “mememe”, öðru nafni Shaun The Sheep, sem ég hef nú mest gaman af því að horfa á með honum :)

Næstkomandi föstudag mun íþróttaálfurinn koma í heimsókn á leikskólann til hans og væri ég þá til í að vera fluga á vegg. Við höfum að mestu sloppið við veikindi (hingað til allavega, 7,9,13) ef frá er talið örlítið kvef og hósti af og til.

Af og til minnir hann á páfagauk sem apar upp öll orð efitir manni þó hann kannski skilji ekki alveg hvað þau þýða, eins og þegar ég er að segja honum hvað litirnir heita, þá virðist flest vera blátt í hans augum.

Ég fór í gegnum gömul (ársgömul) vídjó hérna um daginn af honum og finnst alltaf jafn stórmerkilegt þegar ég skoða gamlar myndir eða vídeó hvað tíminn er fljótur að líða, ég veit þetta er klisja en samt!

Eitthvað hef ég tekið af stuttum myndböndum á nýja símann minn og ætla að setja vídjóin hérna inn og svo auðvitað nokkrar myndir frá ágúst, september og október. Undir vídjóinu hljóma gamlir danskir Eurovision slagarar.

Ívar í september 2009 from Karl E Kristjánsson on Vimeo.

Ívar situr á jeppanum
Ívar sullar í eldhúsvaskinum
Ívar sópar gólfin
Smælað framan í heiminn
Lítill gleðigjafi
Í berjamó á Hólmavík
Fiktað í skrúfunum hjá afa