Archive for March 4th, 2010

Nú er litli guttinn orðinn 2 ára og maður finnur fyrir þroskamun á hverjum degi. Þrátt fyrir þrálátt kvef meira og minna síðan um jólin er yfirleitt hægt að treysta á að maður þurfi að hafa sig allan við heima við við eftirlitsstörfin, því sjaldan situr hann auðum höndum.

Týpískur dagur núorðið er þannig að hann vaknar (alla daga) kl 7, stekkur fram úr rúminu (okkar) og biður einhvern að koma með sér “Mjamm” (fram), þá er beðið um stútkönnu fulla af mjólk (sem við erum nú að minnka skv. læknisráði) og helst vill hann fara með kettinum niður og hleypa honum út og kíkja í eina púsl umferð með undirrituðum. Í morgunmatinn er blanda af seríós og hunangsseríós eða hafragrautur og svo tekur leikskólinn við frá 08:30 til 16:30. Þegar heim er komið er ávaxtar eða sneiðar af lifrapylsu yfirleitt krafist og ýmist leirað, púslað, pinnað, litað eða horft á Shaun The Sheep. Kvöldmatur, bað og háttatími um 20:00. Kl 00:00 – 01:00 vaknar hann yfirleitt í rúminu sínu, grípur sér sæng og kodda í hönd og flytur búslóðarflutningum inn í “Mömmujúmm”.

Í Janúar var hann farinn að botna ansi mörg lög (dæmi: Dansi Dansi Dúkkan “MÍÍÍN”, Dæmalaust Er Stúlkan “FÍÍÍN”) en núorðið er hann farinn að reyna að krafsa sig í gegnum Gamla Nóa sem annars vegar keyrir kassabíl og hinsvegar poppar popp (með misgóðum árangri).

Heitt:
Að púsla púsl vinsælust núna eru 15 púsla pappapúsl í ramma (sem virðast vera bönnuð 0-3ja ára skv. leiðbeiningum)
Að pinna,
Shaun The Sheep,
Barbapabbi, Einar Áskell, Geiturnar Þrjár og Hvað borða dýrin,
Ostepop snakk, Ískex, Kjúklingur, Pasta, Hrísgrjón, Tómatar og “Gógóbokk” (Kókómjólk)

Kalt:
Að bursta tennurnar,
Saltstangir,
Kjöt (annað en kjúklingur),
Latibær, Í Næturgarði
Potty training

Það er alltaf að bætast við orðabókina sem fyrir mánuði innihélt orð eins og…
Dam Dam = Spiderman (er að þróast í bædaman)
Dam Dams = Mandarínur / Appelsínur
Dóóóó = Stór (með tilþrifum og krepptum hnefum)
Blöhblöblöh = Kartöflur (dæmi .. dóóó blöhblöblöblö)
Lulu = Freyðibað
Goggadudda = Koddi og dudda
Gekka = Drekka (í kringum jólin var talað um Lólagekka [jóladrekka] sem voru mjólkurfernur skreyttar jólasveinum)
Blá = Blár
Vau uv = Rauður
Gænn = Grænn (oft notaðir margir litir og þá kannski einn réttur… BláVauuvGænn)
Bæ = Latibær
Iggibæ = Siggi Sæti í Latabæ
Kakka = Krakkar (iðulega notað um krakkana í söngvaborg)
MeMe = Kindur (en iðulega notað um Hrútinn Hrein / Shaun the sheep)

Svo eru sum orð alveg að skila sér en mis smámælt … helst ber að nefna Sósa. Afmælið gekk nokkuð vel þó afmælisbarnið hafi verið hálf vandræðalegur við sönginn svo og allt þetta fólk :)

Hér á eftir fer smá myndasúpa og það er hægt að smella á þær allar til þess að skoða stærri á flickr-inu mínu :)

Puzzlemaster

A Man U Supporter

Feeding the ducks

Ívar and Emilía watching the stars :)

Leikið með dótið

It's hard being a model...

Bríet og Ívar gera böööö

Icecream for desert on Christmas Eve :)

Spenntur Ívar Nói

Nýjasta sportið.... 2 duddur!