Jæææææææææja, ekki er öll vitleysan eins, ég hrasaði inn á www.barnaland.is áðan og við mér blöstu dagbækur ungabarna, en mæður þeirra skrifuðu fyrir þau…. þar sem mátti lesa setningar eins og þessar:
“Ég fékk graut í hádeginu og svo gaf mamma mér að súpa brjóst”
“Ég svaf úti í dag í vagninum, það rigndi mikið, og svo tók mamma mig inn og skipti á mér”
Ég efast ekki um að mæðurnar hafi gaman af því að lesa þetta eftir nokkur ár, en hvað með börnin…. ætli þau lesi dagbækur hvers annars þegar þau eru farin að lesa seinna meir ?? Ætli þetta gangi líka á aðra hluti…. spurning um að stofna www.bilaland.is þar sem bílar eigenda blogga um notkun og þ.h….. minn bíll gæti t.d. bloggað svona:
Í nótt var kalt úti, hitinn var undir frostmarki, pabbi þvoði mér í frosti í gær og það var vont… vatnið sem hann úðaði á mig fraus á toppnum og svo notaði hann ekki gula mjúka svampinn, heldur bara hrjúfa þvottaskinnið. Áðan fórum við svo í bíltúr, það var gaman, við fórum og ég fékk að súpa af stút á Orkunni. Við keyrðum svoldið hratt og ég eyddi miklu bensíni.
Er gaman að lesa svona blogg ? ? ? ? . . . . .
Kalli::Bílabloggari

Nú áðan var ég að ná að þrífa nýja bílinn í fyrsta skipti án þess að hann verði skýjaður eða allur út í blettum og asnalegheitum … Þegar maður hefur aldrei gert svona nokkuð áður er víst venjan að þetta taki svona smá tíma. Herlegheitin tóku u.þ.b. 40 mínútur og í því fólst smúlun, svömpun og þurrkun auk þess sem ég strauk af felgum og þurrkaði falsa. Eitt er samt víst, og er það að veturinn verður strembinn þar sem það er ekki beint hlaupið að því að svampa bíla þegar það er komið frost úti og svona…. en ætli ég finni ekki eitthvað út úr því
Dagurinn hófst með spennu og þó smá kvíða. Ég vissi að ég ætti að fá nýja bílinn minn í dag, en ég bjóst við því að það myndi e-ð klikka, sendingin hefði tafist, þeir hefðu ekki náð að klára, bónið búið, felgurnar ekki til, eða e-r önnur þeirra milljóna ástæðna sem ég gerði mér í hugarlund í morgun. Þegar ég vissi að það var búið að opna hjá Heklu langaði mig til þess að hringja og spyrjast fyrir, en eins og fyrr segir hringdi Jón í mig og sagði mér frá stöðu mála. Ég hófst því handa við að panta mér tíma í skoðun með gamla bílinn svo hann verði sölulegri. Gamli bíllinn rann sjálfsögðu ljúflega í gegnum skoðunina án athugasemda og var ég því mjög kátur klukkan 15:25 þegar ég fékk þann úrskurð. 10 mínútum seinna sendi Jón mér póst og tilkynnti mér að bíllinn biði eftir mér fyrir utan Heklu. Ég dreif þá í því að setja auglýsingu í helgarblað DV og ætti hún að birtast landsmönnum á morgun.
Entries (RSS)