Archive for the Dagbók Category

Jæja, þetta er fyrsta færslan sem skrifuð er í nýju íbúðinni. Við fluttum s.s. í dag með hjálp góðra vina en við erum búin að bíða í tæpa 5 mánuð eftir íbúðinnii!!! Það var þó ekki farið langt, aðeins örfáum húsum neðar í sömu götu og upp úr kjallara í efri hæð. Íbúðin er þó ekki mikið spennó eins og er, en hér er allt á rúi og stúi og aðiens nauðsynlegustu hlutir komnir á sinn stað (rúm, tölva, sjónvarp, ísskápur).

Á morgun verður svo tekið til við að ræsta hina íbúðina og koma henni í hendur nýrra eigenda. Nú ætla ég þó að fara að skrúfa saman eins og eina hillu og halla mér svo eftir laaaaaaangan dag !

Jaeja…. tolva herna i lobbyinu med godri tengingu (sem er ekki algengt a theim stodum sem eg hef verid) svo tharf madur ad daela evrunum i slot til thess ad virkja thetta. Eg aetla ad reyna ad senda reglulega myndbrot hedan og e.t.v. skrifa einhvern sma texta eins og nu.

Eitt fyndid atvik hingad til… hotelid var rafmagnslaust fra thvi vid komum og thar til seint um kvoldid svo thad var funheitt allstadar og sveitti gaurinn i afgreidslunni var a floti… ekkert heitt vatn etc. Annars eru herbergin helv. fin bara, god rum o.s.frv.

Kalli:Brjaladi spanverjinn


Skrýtið að keyra trekk í trekk framhjá húsinu sem maður er búinn að kaupa en fær ekki afhent fyrr en í september :S … Við búum sumsé núna í Bólstaðarhlíð og komum til með að flytja bara neðar í götuna og aðeins nær miðbænum.
Myndina sendi Kalli Gsm
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

Jæja, ég biðst afsökunar á litlum skrifum undanfarið en það hefur verið mjög mikið að gera hjá mér. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er búinn að vera að leita að íbúð núna í nokkra mánuði og sú rétta fannst í síðustu viku og fengum við hana eftir dáldið streð. Ég ætla ekki að reyna að lýsa því hvað það tekur mikið á að vera í þessu að gera tilboð og bíða og svoleiðis, en íbúðin er verður okkar þann 15. september og helstu upplýsingar eru svohljóðandi: Efri sérhæð í fjórbýli í Bólstaðarhlíð (aðeins neðar í götunni en við erum núna), 115 fm + 24 fm bílskúr, nýleg gólfefni, 3 svefnherbergi og 2 stofur, allt í fínu standi með húsið og íbúðina svo þetta lofar allt saman mjög góðu!

Titillinn á færslunni á þó við um daginn í dag, en í gær var gleðskapur og frúin gleymdi myndavélinni í leigubílnum. Ekki var hægt að ná í leigubílstjórann í dag þar sem hann var að vinna alla nóttina og væntanlega sofandi svo dagurinn hjá mér fór í að hafa áhyggjur af því að eiga ekki lengur myndavél og þynnka ofan á það! Í kvöld náði ég þó í kauða og hann hefði auðveldlega getað nappað myndavélinni eða næstu kúnnar á eftir mér en Einar á #98 hjá BSR stóð fyrir sínu og fær hæstu einkunn hjá mér ! :) Ég þarf endilega að smella fleiri myndum inn af slottinu fljótlega en þangað til læt ég þessa teikningu duga :)

DSC01032.JPGJæja, í kvöld var tekið forskot á sæluna og kíkti ég í fríðu föruneyti á sýninguna Komnir til að sjá og sigra sem Ms er að sýna í Loftkastalanum.

Smári frændi fer með stórt hlutverk í sýningunni og hann var að mínu mati potturinn og pannan í þessu öllu saman. Þetta verk er byggt lauslega á Stuðmannamyndinni “Með Allt Á Hreinu” og tekst þeim bara nokkuð vel upp með þessari sýningu. Ég hef bara séð Verzló sýningar fyrir þessa sýningu (svona af þessum framhaldsskólasýningum) og þetta er svona líka allt öðruvísi. Meira er gert uppúr sögunni og live-tónlist en flottum búningum og leikmynd, svo er spurningin bara hvort maður vill sjá eitthvað sem er rosalega mikið “sjóv”. Ég held ég hafi verið illa staðsettur hvað hátalaranna varðar, en tónlistin var svoldið hvell og static í gangi alla sýninguna sem fór dáldið í taugarnar á manni.

Söguþráðurinn er svipaður og í myndinni með nokkrum útúrdúrum og heimfærslu yfir á nútímann. Ef ég ætti að velja uppáhalds senur væru það tvímælalaust samtöl og samræði Frímanns & Heklu (og þá helst misskilningurinn á barnum) en auk þess hafði ég mjög gaman af atriðinu með Sigurjóni Digra. Besta lagið fannst mér sjoppulagið (franskar, sós&salat) og svo var auðvitað svoldið skemmtilegt að heyra frumsamið lag á svona sýningu.

Komin til að sjá og sigra fær alveg 3 popppoka af 4 mögulegum

Popppoki Popppoki Popppoki

EldurSundahofn.jpg
Jæja… ég var að koma úr bíó og þegar úr salnum var komið blasti við mér risa reykský, það var greinilega kviknað í þarna í sundahöfninni. Ætli fréttamenn Moggans sjái ekki landanum fyrir skárri myndum, því þessi eldur lítur eiginlega alveg eins út og ljósastaurarnir :)

klippiklipp.jpgÁður hef ég skrifað um mikilvægi þess að vera með góða hárgreiðslustofu. Það vildi nefnilega þannig til að mín venjulega (e. my regular) klippikona var að hætta í bransanum. Nú er ég búinn að prófa 4 stofur síðastliðna mánuði og tel ég mig vera búinn að finna þá slökustu af þeim hvað flest varðar.
Ég geri kannski bara svipaðar kröfur til þessara hárgreiðslustofa og ég gerði til þessarar sem ég fór áður á en mér finnst alveg ótækt að vera fyrsti kúnni um morguninn og það er ekki búið að sópa hárin upp frá því daginn áður, og ekki nóg með að þau séu á gólfinu heldur svona á víð og dreif um stólinn o.s.frv.

Þegar ég settist sveipaði klippikonan á mig hulu og gerði heiðarlega tilraun til þess að hengja mig í henni (erðettaofþröngt?) svo hófst aðgerðin og í kjölfarið fylgdi tala um tískusveiflur í klippitísku síðustu 20 ár eða svo ásamt sýnidæmum og reynslusögum. Kannski er það vegna þess að ég er dálítil fanatíkus hvað varðar reykingar en mér finnst alveg ómögulegt að krumlurnar sem eru að klippa mig angi eins og reykingarkompan á landsspítalanum, en fólk er misjafnt hvað þetta varðar :)

Mér hefur alltaf þótt skemmtilegur siður að bjóða gel í hárið, sem ég svara yfirleitt játandi, nema þegar á hólminn er komið er gelið yfirleitt eitthvað glundur sem hefur bara verið prófað á naggrísum á undan mér, svo náttúrulega endar maður alltaf á því að “laga til” hárið eftir að maður kemur út… :D
Allavega, ef það væri ekki svona erfitt að fá tíma á þessari skástu stofu af þessum 4 væri valið auðvelt, kannski maður ætti að prófa fleiri :c)