Dagur þessi var heldur óskemmtilegur en þó átti hann sínar ljósu hliðar, ég byrjaði daginn s.s. á því að gleyma aðgangskortinu mínu og beið ég í rigningunni fyrir utan eftir að e-r mætti… og eftir dúk og disk komst ég inn og byrjaði vinnudagurinn uppúr því…. um hádegisbil ræddi ég við vinnufélaga minn og komst að því að fyrrum yfirmaður hans getur mjög líklega komið góðum vini mínum í vinnu, jei !
Í Kringluna fór ég í hádeginu og ætlaði að leita skjóls gegn rigningunni í troðfullum innibílskúr Kringlunnar…. eitthvað voru merkingarnar óskýrar á svæðinu og einhver forláta staur sem var á vitlausum stað varð fyrir mér og viti menn… mér tókst að nudda bílnum svona nett utan í hann, úr urðu þessar líka djúpu rispur, en sökum þess hvernig afturbrettið er byggt hlífði það hurðinni alveg. Réttingaverkstæði Jóa var næsti áfangastaður minn og lagði hann mat á málið, u.þ.b. 20.000 krónur sagði maðurinn og á ég tíma í næstu viku.
Eftir hádegið hringir hún móðir mín og tilkynnir mér að hún hafi unnið 2. vinning í jólagetraun DV. Heimabíó að andvirði 150þús…. JVC dæmi e-ð sem mér skilst að séu ágætis græjur, verst að gömlu hjúin eiga heimabíó fyrir svo JVC græjan er til sölu ef e-r hefur áhuga.
Þegar ég kom heim ákvað ég í fríðu föruneyti að áfangastaður vorsins verður París í öllu sínu veldi, nú fer maður bara að velta hótelum og stöðum til að sjá fyrir sér. Ég segi nú bara “Paris, ici je viens!”
Ég vona að morgundagurinn verði heldur rólegri og léttari á pyngjuna !
Kalli::Útkeyrður