Jæja! Um helgina var nýja myndavélin reynsluekin og get ég ekki sagt annað en að ég sé frekar sáttur við gripinn (þó kynnin séu enn á byrjunarstigum).
Myndavefurinn minn er aðeins að fara að taka við sér þó ég sé enn að vinna upp tap síðasta árs og set ég nú allt á fullt í að setja inn nýjar myndir og commenta það sem fyrir er til.
Helstu specs um vélina eru 4Mpx, 3xZoom, Iso50-400… annars er hægt að stilla svo gott sem alllt á henni og ég á enn eftir að skoða alla möguleikana (þar sem manualinn minn varð eftir í USA). Rafhlöðurnar eru heldur betri en á þeirri gömlu en stærðin er líka mun meiri. Ég fjárfesti einnig í 512Mb minniskorti af gerðinni Viking hjá amazon.com og það væri hægt að fara í góða heimsreisu með eitt þannig og aldrei þurfa að hlaða af!!! (ef maður væri að taka í gummajóh upplausn a.m.k.)

Hverjum hefði dottið í hug að ég hefði verið að fá mér dót !
Jæja, gamli T39 síminn minn hefur fengið arftaka. Búnaðarbankinn var svo góður að endurnýja rekstrarleiguna á T39 símanum mínum og fékk ég T68i síma í staðinn frá framleiðandanum SonyEricsson. Nýji síminn er að standa sig alveg frábærlega það sem ég hef séð af honum þó hann sé svolítið hægvirkur á stöku stað, en ekkert óyfirstíganlegt… ekkert sem hugbúnaðaruppfærsla lagar ekki (og þó). Síminn er með litaskjá, sem er svoldið funky svona þegar maður er að venjast því, en loftnetslaus svo maður þarf ekki að vera að pirra sig á þessum litla stubb sem stingst út úr símanum. Helstu specksur fyrir símann eru að hann er Triband, 100x48x20mm, 700mah, 84gr m. rafhl., 256lita lcd skjár (34x28mm, 101x80pixles), taltími 3-12 klst, biðtími 195-390 klst, hleðslutími 2klst.
Jæja, nú er ég búinn að bóka mér ferð til Parísar og langar mig að fá mér stærri og nýrri myndavél sökum þessa. Þar sem núverandi myndavél mín er enn í toppstandi auglýsi ég hana hér með til sölu. Vélin sem um ræðir er af gerðinni Canon IXUS 300 og helstu upplýsingar um hana eru:
Entries (RSS)