Ég rakst áðan á færslu á blogginu hjá Smára frænda um veðurfréttakonu á NFS sem var í smá vandræðum þegar hún var að byrja með veðurfréttirnar. Ég bara mátti til með að pósta þessu hérna þar sem ég er búinn að láta þetta renna í gegn tvisvar og fæ kjánahroll í hvert skiptið sem eitthvað klikkar. Ætla sko ekki að missa af verðurfréttunum á morgun
!
Fréttatíminn
Bloggið hjá Smára frænda
Archive for the Sjónvarp Category

Ég fékk að vera áhorfandi í sal áðan við upptökur á þættinum “Það var lagið” sem er nýjasta come-backið hjá Hemma Gunn. Þátturinn er þannig að 4 tónlistamenn koma og keppa 2 á móti tveimur í svona eins konar popp punkti nema það að keppendur fá brot úr texta laga og eiga að syngja lagið sem þeir halda að sé verið að spyrja um. Fyrsti þátturinn er á morgun (föstudag) klukkan 20:05. Dáldið vandræðalegt að vera í sal en þátturinn slær eflaust í gegn hjá eldri kynslóðinni.
Myndina sendi Kalli Gsm
Sent með GSMbloggi Og Vodafone
Jæja, nú er búið að frumflytja íslenska lagið hjá Gísla Marteini. Ég vil óska Guðjóni til hamingju með glæsilegt myndband og finnst lagið bara vera nokkuð gott (og mjög gott miðað við hin lögin sem búið er að velja fyrir forkeppnina og aðalkeppnina).
Samkvæmt heimildum mínum er búið að loka á helstu búllurnar á netinu þar sem maður getur náð í lögin sem búið er að velja svo ég ákvað að loka á lögin sem ég var með hérna á síðunni (allavega þangað til það opnar einhver af þessum stóru aftur með þetta) svo netveitan mín sendi mér ekki bakreikning uppá einhverjar milljónir. Ef einhver hefur þó áhuga á að nálgast eins og eitt og eitt lag innanlands sendi ég glaður slóð á svoleiðis (sendið mér bara línu á kalli (at) geimsins (punktur) com.
Jæja, það kom að því að ég smellti inn lögunum fyrir keppnina þetta árið, þau er að finna hérna til hliðar undir Eurovision 2005.
Ég flokkaði lögin eftir því hvort þau taka þátt í undankeppninni 19.maí (fimmtudagur) og hver eru sjálfkrafa komin áfram í aðalkeppnina 21.maí (laugardagur). Alls eru 14 lög sjálfkrafa áfram og pláss laust fyrir 10 lög til viðbótar úr forkeppninni en í ár taka þátt heil 26 lög !
Þá er það bara að fara að hlusta !
Jæja, þá er þessu lokið og ég get ekki sagt að ég hafi orðið mjög hissa yfir úrslitunum. Heiða og Hildur Vala eru eins ólíkar og svart og hvítt, Hildur Vala á heima í rólegum ballöðum á meðan Heiða á rokkballöður og svona fjörugri lög alveg skuldlaust.
Ég vonaði að þriðja umferðin dygði Heiðu til að ná uppí Hildi en nú er bara að vona að þær fái ekki Kalla Bjarna syndromið og gleymist jafn fljótt og þær skutust uppá stjörnuhimininn. Einnig spái ég því að þær gefi báðar út plötu fyrir næstu jól og selji grimmt!
Þessi frétt hefur eflaust glatt margan júróvísjón áhorfandann. En hver man ekki eftir Jan Teigen ? Hann sló í gegn með lögunum Do-Re-Mi, Mil Etter Mil og Adieu. Þeir tala nú um hann sem frægasta lúserinn í Eurovision keppninni, ég segi nú ekki til um það heldur set ég lagið Do-Re-Mi hérna opið til niðurhals. Dæmi svo hver fyrir sig
Tveir félagar í Litháen gerðu sér lítið fyrir og grínuðu aðeins í liðinu sem velur í undankeppni Eurovision þar í landi. Þeir sendu inn lagið Ben með Michael Jackson, nema hvað að þeir voru búnir að búa til fake nafn á söngvara sem söng það eins nema að hann söng You í stað Ben.
Lagið var svo valið og átti söngvarinn/söngkonan Justė Kriauzaitė átti svo að stíga á stokk n.k. laugardag með umrætt lag þegar þeir félagar létu þetta allt saman leka í fréttirnar. Var þá haft eftir keppnishöldurum að þeir þekktu ekkert endilega “öll lög sem michael jackson heði tekið upp”.
Stórgott !
fréttina má finna hér -fréttin-
Í öðrum fréttum er búið að “birta” lögin frá Andorra svo það er um að gera að kíkja á þau hér -lögin-

Entries (RSS)