Archive for the Tölvur og tækni Category

header_05.gifHér lenti nýr sími í gær, hann heitir S700i og ég verð að segja að hann hefur hingað til komið mér skemmtilega á óvart. Þegar maður skiptir um síma þarf maður að setja stillingar á milli símanna eins og t.d. póststillingar gleymir maður jafnan svona hlutum, þá er gott að hafa trausta internetþjónustu sem veit sínu viti! (takk, Egill). Svo er bara að sjá hvernig gengur að senda inn myndir með nýja símanum og hvort hann verði T630 og SE í heild sinni til sóma, þó feitur sé :D .


Gaman þegar tölvugaurarnir fara að gera svona nýjungar eins og að senda segul með cisco routerum sem maður kemur fyrir á járnvegg, setur svo routerinn á segulinn og hann límist við eins og ég veit ekki hvað, ansi sterkur segull á ferðinni … svo má líka nota hann til þess að festa brauðristina á kaffivélina :D
Póstbloggfærslu sendi ég
Sent með GSMbloggi Og Vodafone

Ég var að kaupa mér tengibox utan um stóran harðan disk og auðvitað vill svo skemmtilega til að græjan virkar ekki eins og auglýst er (m.ö.o. detectar tölvan skúffuna ekki sama hvað tautar og raular) það fer óendanlega mikið í taugarnar á mér þegar ég kaupi hlut sem virkar ekki from day 1.
Ég fer því með blessaða vöruna á verkstæði tæknibæs núna í morgun og fæ að vita að þetta tekur a.m.k. einn dag. 1 DAG ? það þarf enginn að segja mér að það taki 1 dag að stinga hörðum diski í þetta og setja í samband… og svo segir afgreiðslumaðurinn mér að það séu jú kúnnar sem eru að borga 4þús fyrir að fá hlutinn sinn til baka samdægurs en ég sá hvergi reitinn Varan hefur aldrei virkað svo henni ætti að skipta út samdægurs. Eftir dúk og disk náði ég að kría út betri tíma (þ.e. kl 15:00 í dag hugsanlega kannski) … svo það veltur á því hvort það standist hvort ég versli við þessa verslun aftur.
Eina tölvuverslunin sem ég hef ekki lent í öðru en bullandi hamingju með er verslunin TölvuVirkni í kópavogi, þeir hafa þá mestu þjónustulund á markaðinum í dag! (og hef ég nú verslað við margar tölvubúðir í gegnum tíðina!).

Um daginn var samstarfskona mín að koma sér fyrir í nýju plássi á vinnustað, í þessu plássi sat áður ungur piltur er brúkaði tvískipt Multimedia Lyklaborð frá Microsoft. Hún var í vandræðum með að ná lyklaborðinu úr plássinu þar sem tengillinn á því var ekki að komast í gegnum hilluna undir lyklaborðinu. Þegar hún hafði togað og togað kom loks að því að snúran gaf sig og tengillinn varð eftir á gólfinu. Ég bjargaði þessu nýlega ms lyklaborði úr ruslinu því það borgar sig víst ekki að gera við svona dót…. en ég gerði mér lítið fyrir og keypti lóðbolta og tin og lóðaði snúru af gömlu lyklaborði á kvikindið, og hér sit ég og vélrita á umrætt borð og hef tröllatrú á þessari fyrstu og vonandi ekki síðustu lóðningu minni :)

Kalli::Electrician

Sértu í vandræðum með tölvuna sem lýsa sér þannig að hún restartar sér í tíma og ótíma og kemur með villuskilaboð eins og “IRQ LESS OR EQUAL TO NULL” og “PAGEFAULT IN NON PAGED AREA” og fleira í þeim dúr skaltu taka eftir skilaboðunum sem WindowsXP birtir næst og þú startar upp, þá koma villuskilaboð sem gefa í skyn að minnið sé fucked skaltu.

1. prófa minnið með tólum eins og Windows Memory Diagnostic tool (MTINST.EXE) og ef það koma engir böggar eftir að það hefur fengið að keyra í dágóðan tíma og engar villur gæti vandamálið legið í chipsettinu á móðurborðinu.
2. Sértu með 2 minniskubba prófaðu að taka minnið úr og setja annan kubbinn í aðra raufina, svo hinn kubbinn í sömu rauf … ef báðir ganga prófaðu þá það sama við hina raufina, þannig ættirðu að finna hvort vandamálið liggji í minninu eða í móðurborðinu.
3. Séu engin tengsl milli staðsetningar minnisins og vandræðanna farðu þá á heimasíðu móðurborðsframleiðandans og leitaðu að síðu eins og þessari hérna hjá ATI og athugaðu hvort minnið þitt sé á lista yfir compatible minni. Sé það ekki á listanum gætirðu þurft að skipta því út.
4. þurfirðu að skipta út minninu er yfirleitt best að kaupa í staðinn brand name minni sem virðast yfirleitt ganga betur í svona picky móðurborð, t.d. Kingston eða Samsung.

Ennfremur ef þú lendir í svipuðum hlutum og ég þar sem ég keypti tölvu fyrir jólin og þegar ég keyrði minnið á 400mhz startaði tölvan ekki upp í winxp en strax og ég klukkaði minnið niður í 333mhz ættirðu að skipta minninu strax út því ekki viltu keyra hana á 333mhz (þó munurinn sé ekki mikill) og þá kemur hún samt til með að hegða sér skringilega. SKIPTU ÚT MINNINU!

Þetta var kannski meira svona note-to-self heldur en ráðlegging, en alveg sama :) þetta er komið hérna inn.

Kalli::Vandræðagemsi

Sértu að converta XVID skrá yfir í MPEG eða álíka með forriti eins og TMPGEnc þarftu að hækka priority á VFAPI pluginum fyrir hljóð og setja DirectShow Multimedia File Reader í highest priority, annars detectar forritið source skránna vitlaust og outputið verður hljóðlaust… kannski þetta sé bara note-to-self ;)

Móðir vinar míns fékk tölvu nýverið og vinur minn keypti fyrir hana módem til þess að setja í hana, hún hringdi núna áðan í títt ræddan vin með skemmtilega spurningu: “Hvað kostaði Itemið ?” sem átti að vera “Hvað kostaði módemið ?”

…þessir litlu hlutir sem kæta mann :)