geimsins.com

Japan – Dagur 11 – Hiroshima / Miyajima…
Við vöknuðum (mis) hress og kát eftir dvölina á dýnunni. Andrea var ekki alveg að lifa sig inn í japönsku stemminguna á næfurþunnri dýnu á frekar hörðu gólfinu, en við Emilía sváfum hinsvegar eins og grjót.

Beint niður í traditional japanskan morgunverð sem samanstóð af allskonar eins og kvöldmaturinn. Pikklað grænmeti og ávextir, nori blöð og hrísgrjón, bakaður fiskur, miso súpa, sashimi og beikon og egg eldað á leirpönnu hjá hverju okkar á borðinu.

Við héldum svo áleiðis að kláfinum (kláfnum?) sem ferjar fólk áleiðis á toppinn á fjallinu helga, mount Misen. Ferðin var farin í tveimur áföngum, fyrri í 4-5 manna funnicular type kláf og seinni leggurinn í 10-15 manna “sky-car” sem þeir kalla hann. Útsýnið var stórkostlegt yfir eyjaklasana í kringum Miyajima og til Hiroshima. Þegar seinni kláfurinn er kominn á leiðarenda tekur u.þ.b. 30 mín að komast eftir stígum á toppinn á fjallinu (c.a. 35m. lækkun og svo 135m hækkun). Stelpurnar fóru hálfa leiðina á toppinn og héldu svo til baka meðan ég trítlaði upp til þess að taka myndir. Á leiðinni upp er hægt að berja augum eilífðareldinn (eternal flame) sem búið er að halda lifandi í 1200 ár!!! og var notaður til þess að kveikja eldinn sem logar í friðargarðinum í Hiroshima. Nokkur temple og skrýtnir steinar á leiðinni upp auk þess sem það var trúlega e-r heræfing í gangi þar sem tvær orystuþotur flugu yfir, flugmóðuskip sigldi frá Hiroshima og kafbátur stakk sér uppúr sjónum.

Hnén létu svo vita af sér á leiðinni  niður enda ég með stóru vélina á bakinu og búinn að ganga allan daginn í 10 daga! Við komumst þó niður klakklaust og héldum beint að Itsukushima þar sem við krössuðum japanskt brúðkaup og sáum brúðhjónin fara með nokkur orð, draga hringa á fingur og knúsast.

Brúðkaup í Miyajima

Beint úr shrine-inu heim á hótel að sækja töskurnar og við splæstum svo í leigubíl niður á bryggju í stað þess að draga töskurnar þessa 20 mín leið! Leigubíllinn var prius sem var þrengri en andskotinn og ökumaðurinn var 60 ára kell… kona sem keyrði ansi greitt um göturnar. Hún þurfti að troða sér í gegnum þröng stræti og meðfram bílum það tæpt að hún þurfti að draga speglana inn til þess að komast framhjá (gefum henni props fyrir það!).

Við tók lestarferð til Hiroshima station, leit að hótelinu sem við fundum svo eftir dúk og disk. Á hótel Urbain voru Engrish skilti út um allt, þ.e. enska sem einhver hefur rúllað í gegnum google translate, prentað skilti og plastað upp á vegg. Þar var einnig public bath með sauna og suðupotti sem ég nýtti mér um kvöldið.

Beint í streetcar (sporvagn) og í A-Bomb dome, leifarnar eftir kjarnorkusprenginguna í Hiroshima. Þaðan gengum við í gegnum friðargarðinn og í safnið sem var sett upp til upplýsinga um áhrif sprengigarinnar á japönsku þjóðina, borgina og fólkið. Þarna var ansi góður fróðleikur um atómsprengjur, virkni þeirra og eyðileggingarmátt. Líkön af borginni fyrir og eftir sprengingu auk fróðleiks og mynda frá eftirlifendum fórnarlambanna, einhverjum munum sem bráðnuðu í drasl og í raun alls þess sem má vænta af safni af þessum toga.

A-Bomb dome í Hiroshima

Á safninu hittum við íslendinga, þá sömu og við hittum í Miyajima! Atla og konu hans Guðrúnu og Þórð, son þeirra. Þau voru í heimsókn hjá íslenskri konu (Rebekku) og þýskum manni hennar (Alexander) sem vinnur fyrir þýska konsúlatið í Osaka í Japan. Alexander þessi talar Þýsku, Íslensku, Japönsku, Ensku og Frönsku auk hrafls í e-m fleiri málum. Japanirnir voru margir hverjir ansi forviða þegar þeir sáu þennan ágæta Þjóðverja en hann er örugglega 2.20 á hæð og í þjóðfélagi þar sem margir eru ansi lágvaxnir ýkist munurinn á honum og rest. Emilía og Þórður gátu spjallað aðeins saman og við röltum svona í slagtogi með þeim í gegnum safnið, kvöddum þau svo og héldum okkar leið, en þegar við höfðum gengið fram hjá ótal vinnufélögum, fjölskyldum og vinum í Hanami (flower viewing) partýum meðfram ánni í Hiroshima stilli ég mér upp á einni brúnni að taka mynd og við hliðina á mér stendur auðvitað Atli… við vorum þá aftur að rekast á þau og ákváðum að fara með þeim út að borða þar sem það voru allir á þeim buxunum.

Fyrir valinu varð ítalskur/vestrænn staður sem bauð upp á hlaðborð með eftirréttarhlaðborði. Það var allskyns góðgæti í hlaðborðinu svo ég tali nú ekki um eftirréttina, söss! Eftir matinn fórum við svo beint upp á hótel og í háttinn, enda langur ferðadagur daginn eftir.

Alexander stóri...

Japan – Dagur 10 – Miyajima…
Eftir Osaka var förinni heitið til Miyajima eyju sem er einn helgasti staður Japans. Við vorum því mætt snemma á lestarstöðina í Osaka þar sem mér tókst að týna stelpunum! Þær voru ekki týndar lengi en nógu lengi til þess að það kæmi upp smá stress með hvort við næðum lestinni til Hiroshima.

Smá fróðleikur í boði Wikipedia:

Itsukushima (厳島?)  is an island in the western part of the Inland Sea of Japan, located in the northwest of Hiroshima Bay. It is popularly known as Miyajima (宮島?), the Shrine Island. The island is one of Hayashi Razan’s (林羅山?)  Three Views of Japan (日本三景, Nihon Sankei?). Itsukushima is part of the city of Hatsukaichi in Hiroshima Prefecture. The island was the town of Miyajima prior to the 2005 merger with Hatsukaichi.

Itsukushima is famous for the Itsukushima Shrine, a UNESCO World Heritage Site. According to records, the shrine was established in the time of Empress Suiko. The warrior-courtier Taira no Kiyomori gave the shrine its present form. In 1555, Mōri Motonari defeated Sue Harukata at the Battle of Miyajima. Toyotomi Hideyoshi built a large building, the Senjō-kaku, on a hill above the shrine.

Shinkansen ferðin uppeftir var ekki nema tæpir tveir tímar og leið mjög hratt. Ég fékk mér bento með djúpsteiktri grísalund, hrísgrjónum og súrsaðri plómu.

Í Hiroshima fórum við beint í local lest að Miyajimaguchi þar sem við tókum ferjuna yfir til Miyajima eyju. Risastóra O-Tori-ið blasti við okkur á leiðinni út og þegar við komum í land tóku bambarnir á móti okkur

Við geymdum “gósstöskuna” á ferjustöðinni og röltum okkur á Ryokanið sem við gistum á (30mín!) Emilía var orðin dálítið slöpp um þetta leiti og fór afsíðis til þess að losa sig við morgunmatinn. Hún er hugsanlega með eitthvað skelfisksofnæmi eða e-ð óþol?! Við fundum svo gistihúsið og auðvitað var herbergið ekki til fyrr en á slaginu 16:00. Andrea varð því eftir hjá sjúklingnum meðan ég sprændi af stað í skoðunarferð um eyjuna. Það var háfjara þegar við komum út svo ég gat gengið út að O-Tori hliðinu fyrir framan Itshukima shrine-ið. Þetta tori hlið er mjög gjarnan myndað og sett upp á vegg á japönskum veitingastöðum enda mjög ljósmyndavænt! Í grynningunum var fjöldi heimamanna að grafa eftir ostrum (geri ég ráð fyrir) og túristarnir kepptust við að taka myndir og reyna að troða peningum í allar rifur á gate-inu, en ég þarf að komast að því hver ástæðan er fyrir því!

O-Tori-Gate í Miyajima

Eftir rúntinn fór ég aftur upp á hótel til þess að hitta stelpurnar, en þá var Emilía orðin hressari og við búin að fá herbergið (vídjó).

Við fórum svo út og skoðuðum meira, verslunargatan og svo biðum við eftir sólsetrinu við O-Tori hliðið. Eyjan er gríðarlega falleg og það er varla hægt að lýsa því hvað Cherry Blossom trén eru falleg í blóma, en við höfum bara séð eitt og eitt hingað til, hér eru öll í bullandi blóma, fölbleik og falleg. Við hittum svo íslending á leiðinni aftur á hótelið. Hann var í hópi með 8 íslendingum og þetta er fyrsti íslendingurinn sem við hittum í Japan! Við sögðum honum frá ferðinni og kvöddum (hann kemur við sögu síðar).

O-Tori-Gate í flóðinu

Upp á herbergi fengum við svo furðulegasta samansafn af mat sem ég hef séð (og smakkað) en maturinn var borinn á borð inn á herbergi hjá okkur. Þegar við vorum búin að fá þennan risa bakka með mat var svo dinglað á bjöllunni aftur og þau mætt með djúpsteiktar ostrur og bakaðan fisk á tveimur ílátum í viðbót. Ég taldi skálarnar/ílátin sem hvert okkar fékk og voru þær 21, takk fyrir! Við gerðum þessu eins góð skil og við gátum áður en við héldum í háttinn.

Ég leit þó við í Onsen-inu áður en ég fór að sofa og skolaði mig þar eins og sannur heimamaður og dýfði mér í pottinn áður en ég hélt í bælið. Heitu pottarnir sem þeir dýfa sér í eru trúlega í kringum 43+ gráður og maður þolir varla að staldra við nema í stuttan tíma, svo tíðkast að fara og buna yfir sig ísköldu vatni á milli.

Herbergið okkar var traditional japanskt með tatami mottum á gólfinu og pappaveggjum sem aðskildu “herbergin”. Við færðum borðið s.s. af gólfinu eftir kvöldmatinn og bjuggum um okkur á dýnum á gólfinu. Við fengum líka Yukata til þess að klæðast inni og við klæddum okkur auðvitað upp um kvöldið og tókum mynd!

Haaaiiiii MAJIDE ! Allir í Yukata

O-Tori-Gate í ljósaskiptunum

Eitt dádýrið á Miyajima eyju

Japan – Dagur 9 – Kyoto…
Það kom í ljós að ákvörðun Andreu um að drífa sig til Osaka í gær þegar stormurinn brast á var töluvert góð því annars hefðum við trúlega orðið strandaglóðpar í Kyoto til 22 eða 23 í gærkvöldi! Það brast nefnilega á stormur hérna og hann gerði mjög mikinn usla, 4 manns hafa látið lífið, rúmlega hundrað slasast og lestar og flugsamgöngur lágu niðri í langan tíma í gær.

Golden pavillion

Í dag var allt komið í samt lag (a.m.k. hérna í Osaka og Kyoto) og við tókum lestina án vandræða í morgun, reyndar vitlausa lest sem stoppaði á öllum fracking stoppistöðvum til Kyoto og tók þ.a.l. c.a. 20 mín lengri tíma, við vorum þó í sætum í lestinni svo það slapp alveg. Við vorum búin að teikna upp gróft plan fyrir daginn og það hófst á því að taka bússinn til þess að sjá Kinkaku-ji eða “Temple of the Golden Pavillon” (sjá mynd) sem ber nafn með rentu þar sem búddista temple-ið sem er á myndinni er húðað með skíragulli. Glöggir Mac-áhugamenn ættu að kannast við þetta hof því þetta er ein bakgrunnsmyndin í osX (“golden palace”). Btw. ég tók þessa mynd í dag þó hún sé eiginlega það póstkortaleg að hún gæti verið stock photo.

Þarna er tjörn og nokkur lítil hof á sama svæði, allt saman mjög fallegt og stíllinn á þessum garði á að vega eitthvað sérstakur í sögu hönnunar á japönskum görðum sem ég hef ekki náð að setja mig nógu vel inn í

Næst héldum við til Ryōan-ji eða “The temple of the dragon at peace” þar sem má finna einn frægasta zen garð Japans og það er ekki laust við að maður hafi náð að slappa svoldið af sitjandi á sokkaleistunum þarna í sólinni við nýrakaða steinanna. Það hefði auðvitað verið eðal ef Cherry Blossom trén væru öll búin að blómstra en svo var ekki og spekingarnir eru að tala um að það sé mikil blessun að þau hafi ekki verið búin að blómstra því þá hefðu blómin trúlega fokið mikið til í burtu í nótt/gær í storminum.

Hádegismatinn tók ég á stað sem er partur af keðju sem ég hef séð nokkra staði frá en þeir servera m.a. hrísgrjón með bbq nauta eða svínakjöti grilluðu á kolum og eldi. Emilía var með McDonalds craving svo ég rambaði inn á þennan stað hinum megin við götuna. Maturinn var algjört lostæti (eins og flest hérna) og eins einföld og uppskriftin hefur sennilega verið var þetta bara eitthvað svo authentic.

Við héldum þá í Gion hverfið til þess að skoða það í dagsbirtunni og freista þess að sjá e-r Geishur á götunum og duttum við heldur betur í lukkupottinn því síðustu helgi var búið að tilkynna árlegt rölt Geishulærlingana um götuna þar sem þær pósa fyrir ljósmyndara dagblaða undir cherry blossom trjánum en þá var rigning svo sá atburður gerðist í dag, og nákvæmlega þegar við vorum að labba inn í hverfið, what are the odds! Ég gat því komið mér fyrir á góðum stað með trúlega 100 manns sem voru búnir að campa við eitt cherry blossom tréð þar sem sá sem stóð við hliðina á mér tjáði mér að síðustu ár hefðu þær alltaf stoppað þarna. Viti menn, skömmu síðar röltir hún sér inn í miðjan hringinn sem búið var að mynda og pósar fyrir alla.

Geisha í Gion

Geisha í Gion undir Cherry Blossom tré

Deginum í Kyoto lukum við svo í Kiyomizu-dera sem er búddista hof á world heritage lista UNESCO. Aðal salurinn er með risastórum svölum sem hanga utan í fjallsbrún með gríðargóðu útsýni yfir Kyoto.

Smá fróðleikur frá wikipedia:

The popular expression “to jump off the stage at Kiyomizu” is the Japanese equivalent of the English expression “to take the plunge”.  This refers to an Edo period tradition that held that, if one were to survive a 13m jump from the stage, one’s wish would be granted. Two hundred thirty-four jumps were recorded in the Edo period and, of those, 85.4% survived.  The practice is now prohibited.

Þetta svæði inniheldur líka 3ja hæða Pagoda og fjölda af öðrum shrine-um, foss sem rennur inn í þrjár pípur sem hægt er að grípa vatnið úr og óska sér, allt mjög ljósmyndavænt þarna á svæðinu.

Í kvöld var okkur svo boðið í mat af Yashi og Moss manninum hennar, þau spurðu okkur hvað við vildum borða og ég er ekki enn búinn að prófa Wagiyu beef svo mér datt í hug að biðja þau um að fara með okkur á steikhús sem þau og gerðu. Við fórum með þeim á steikhús sem ég gat ekki séð betur en héti Cowboy steak. Þetta steikhús á víst að vera mjög þekkt hérna og hefur verið fjallað um það á food network að sögn þeirra   Steikin var delisssssh nánast alveg hrátt kjötið sem var eldað á litlum steypujárnspönnum sem mættu svo sizzlandi heitar á borðið til okkar. Þau hafa þann háttinn á hérna að fólk sker nokkra bita af kjötinu og grípur svo prjónanna til þess að borða. Kjötið var eldað í sósu sem ég kann ekki að lýsa nógu vel… gæti verið svona bbq teriyaki soyja mix eitthvað. Þegar ég spurði þá fengum við að vita að þetta væri uppskrift veitingastaðarins og hún væri algjört leyndó.

Á morgun munum við fara til Miyajima svo það má vænta þess að það heyrist ekki múkk frá okkur þar sem við munum gista í traditional japönsku gistihúsi úti í eyjunni.

Japan – Dagur 8 – Kyoto…
Dagurinn í dag átti að vera votur og hann var það heldur betur. Við byrjðum daginn á Starbucks sem er hérna í hótelgarðinum en við vorum búin að mæla okkur mót við Japani sem við kynntumst í gegnum Karen og Adam. Yashi, dóttir hennar Futaba og kærastinn hennar Sato hittu okkur í lobbyinu á hótelinu klukkan 10 en þau fóru með okkur á The International Manga Museum í Kyoto.

Please take freely

Please touch your card key... sure!

Aðeins af hótelinu hérna í Osaka. Það er margt hérna frekar furðulegt, en lobbyið er á 8.hæð og á sömu hæð er kapella sem er eins og kirkja í laginu og það er eins og það sé búið að skera úr hótelbyggingunni fyrir henni. Hér fara reglulega fram brúðkaup og það hanga plattar á veggjunum með nöfnum brúðhjóna. Ég hef enn ekki séð gesti á hótelinum sem eru ekki japanskir og það eru allavega tveir hérna á svipuðum slóðum og við sem fara gjarnan á náttsloppnum fram á gang og reykja! Fáir vesurlandabúar þýðir líka Engrish-Garore, en hér eru margir góðir frasar upp á veggjum. Hótelið er innréttað með gömlum innréttingum og það er allt svona “gamaldags”. Kristalsljósakrónur í loftum etc.

Emilía og Rauðmundur risasvanur

Anime safnið kom skemmtilega á óvart enda margt til sýnis þarna, m.a. hvernig teiknimyndasögurnar eru gerðar, hver sagan á bak við þetta æði er, útbreiðslan, áhrif og í raun nóg fyrir einhvern sem hefur ekki hugmynd um hvað þetta snýst til þess að vera töluvert betur upplýstur. Allir gangar eru dekkaðir bókum í hillum og það sat fólk á öllum aldri að lesa bækur og tímarit þarna inni.

Hádegismaturinn var kaffi og tertusneið á kaffihúsinu í safninu en þá fór að bæta í rigninguna sem var búið að spá fyrir daginn. Japanarnir ætluðu að fara með okkur í nokkur shrine og eyða deginum með okkur í Kyoto og við vorum staðráðin í því að láta ekki smá rigningu stoppa okkur. Meðan við biðum eftir strætó sáum við eldingar og skýin dökknuðu mikið og urðu svo eiginlega sinnepsgul áður en það HELLTIST niður rigningin og vindur meððí! Í þeirri andrá mætti strætóinn og við það að hlaupa úr skjóli og í strætóinn urðu flestir ansi blautir, en þegar við sáum hversu rosaleg þessi rigning var (sjá vídjó) tókum við þá ákvörðun að halda aftur til Osaka. Enda Kyoto borg sem þú ferðast um gangandi og í strætó og það var varla stætt úti.

Yashi og félagar fóru með okkur aftur til Osaka og gengu með okkur að verslunargötu þar sem Emilía fann enn eina anime búðina og við fengum okkur Ramen núðlur með Yashi á meðan. Ég bað Yashi að sýna mér hvar í pöntunarsysteminu ég myndi finna eitthvað spicy og fékk skammt sem var kannski rétt pínulítið meira spicy en venjulegur skammtur gæti ég trúað.

Ramen núðlur

Kyoto special - Oreo kökur með grænu-te-bragði

Það sem er svoldið fyndið við Osaka er að það liggja undirgöng undir stórum hluta borgarinnar og við vorum búin að vera að labba “ofanjarðar” frá því við komum en það var hægt að ganga beint út um kjallarann á hótelinu okkar inn í völundarhús af neðanjarðar “götum” sem virtust teygja sig endalaust í allar áttir.

Á leiðinni heim tókum við svo með okkur Tagiyoki kúlur sem eru svona Osaka tradition, en það eru Octopus balls sem eru deigklattar sem búið er að sneiða octopus út í og eru svo steiktar á þar til gerðum kúlujárnum yfir opnum eldi (sjá vídjó).

Ranghalar undir Osaka

Japan – Dagur 7 – Osaka…
Í dag fórum við með Shinkansen byssukúlulestinni til Osaka. Þar sem Shinkansen stoppar bara á tveimur stoppistöðvum í Tokyo þurftum við að taka lest frá Shinjuku til Shinagawa og taka svo lestina þaðan. Eftir innkaup gærdagsins reyndist þörf á því að kaupa nýja tösku undir góssið svo við þurftum að trilla tveimur töskum á hjólum, einni íþróttatösku (sem við keytpum) auk bakpokanna sem hvert okkar er með í lestina frá Shinjuku til Shinagawa á háannatímanum. Fólki var einfaldlega troðið inn í lestina af starfsfólki Japan Rail og ég er nokkuð viss um að sardínur í dós séu bara með dágott pláss miðað við ástandið á sumum lestunum í morgun.

Við komumst þó á lestarteinanna og biðum lestarinnar. Þar sem merkingarnar eru ekki alltaf á ensku vorum við næstum farin upp í lest einhvert ALLT annað en áttuðum okkur á því áður en það var um seinan. Fundum lestina og snæddum nestið okkar / morgunmatinn þegar lestin var farin af stað. Bento box eru algeng sjón hér í Japan en það er annað hvort heimasmurt nesti eða keypt í næstu verslun. Innihaldið samanstendur oftast af hrísgrjónum og annað hvort kjöti eða fiski, pickled grænmeti og einhverju sætu. Við komum við í einni versluninni áður en við fórum og keyptum okkur nesti og ég stóðst ekki mátið og keypti bento box með djúpsteiktum (köldum) kjúkling og hrísgrjónum. Í því var líka smá biti af reyktum osti og örlítið kartöflusalat. Þetta var svoldið eins og að borða kfc daginn eftir en með hrísgrjónum og að tína þetta upp í sig með prjónum í lestinni var bara partur af prúgrammet, enda tradition hjá þeim að borða bento í shinkansen en aldrei sér maður neinn svo mikið sem fá sér sopa af e-u eða borða eitthvað í metroinum. Andrea lét sér nægja samloku og Emilía borðaði súkkulaðifyllt sætabrauð sem leit út eins og uppblásið pylsubrauð með súkkulaðikjarna.

Þegar við komum til Osaka fundum við hótelið áfallalaust, fengum okkur kaffibolla og skipulögðum daginn, fundm okkur því næst lítinn og kósí stað sem serveraði heilhveiti núðlum (soba) og nýja uppáhaldið mitt… OkunumiYaki! Það ætti ekki að vera flókið að gera svoleiðis heima, en það er eitthvað sem þeir láta í þetta sem gerir þetta svona djúsí! Uppistaðan í þessu er saxað kál, egg, einhverskonar kjöt og stundum baunaspírur. Svo er þetta smurt með afbrigði af teriyaki sósu og steikt á sjóðandi grilli áður en þetta lendir á disknum hjá þér og þjónninn sprautar örlitlu japönsku mayo yfir allt saman.

Við héldum svo til Kyoto með Super Rapid Express lestinni (not to be confused with Rapid Express eða Express sem eru líka til) og lentum í Kyoto akkúrat þegar allt var að loka eða klukkan 16:30. Tourist information tilkynntu okkur að nokkrir möguleikar væru í boði svona seint um daginn og það var meðal annars að rölta í Geishu hverfinu og að skoða Nijo kastalann sem við gerðum. Einhverjir hlutar voru í viðgerðum en það sem við sáum var mjög fallegt, garðurinn umhverfis kastalann var stórkostlegur, nokkur Sakura tré í blóma og ótrúlega fallegt og picturesque tehús í garðinum. Það voru þrjár japanskar konur að spila á einskonar langspil þegar við vorum komin í gegnum rúntinn og einnig markaður þar sem hægt var að kaupa mat og varning úr héraðinu.

Ótrúlega fallegt tehús í garðinum við kastalann

Kellurnar á langspilinu

Við tókum svo strætó í Gion sem er Geishu hverfið og töltum þar um þröngar götur fullar af veitingastöðum með pappaveggjum og svo út að brúnni þar sem Geishurnar eru að skemmta þeim sem hafa efni á. Við sáum 3 á leiðinni að brúnni og svo sáum við nokkrar í skemmtigírnum í gegnum glugga með hinum túristunum.

Göturnar, lestarstöðvarnar og meira og minna öll svæði hérna eru svo hrein að ég hugsa að ég gæti gengið um á táslunum án þess að verða mjög skítugur enda með eindæmum þrifalegt fólk hérna. Cherry Blossom trén eru aaaalveg við það að springa út hérna en það eru einhverjar tegundir þeirra sem eru núna í skrúða og blómin eru alveg ða springa út á rest. Þar sem blómin endast bara í u.þ.b. viku er alveg ótrúlega mikil stemming fyrir þessu fyrirbæri og fólk mikið að spökulera í hvenær blómin komi, til að mynda var verið að taka viðtal við einhvern mann í gær sem var með stækkunarglerið á plöntunum í Tokyo og hefur eflaust verið að koma með loka spá fyrir blómin í Tokyo. Hér í Kyoto / Osaka held ég að þetta telji í klukkutímum hvenær við megum vænta þess að sjá þessi blesssuð tré í fullum skrúða.

Þröngar götur í Gion

Tokyo – Dagur 6 – Harajuku…
Í dag fórum við til Harajuku sem er rétt hjá Shinjuku en þar spássera Cosplay dömur um á sunnudögum og nærliggjandi götur fyllast af fólki. Í Harajuku er viss brú yfir lestarteinana einskonar meeting point fyrir fólk sem klæðir sig upp í e-skonar alter ego klæðnað, eins og cosplay. Partur af þessari cosplay menningu er Goth Lolita eða GothLoli sem (fyrir mér) lítur út eins og blanda af viktoríutímanum, þernuklæðnaði og pönkara átfitti.

Emilía var búin að versla sér fjólubláan kjól og bleika hælaháa skó fyrir daginn og klæddi sig í þessa múnderingu áður en við fórum til Harajuku. Hún fékk vægast sagt sinn skammt af athygli en ferðamenn voru æstir í að taka af henni myndir, svo var líka tekið við hana viðtal af e-m japönskum netmiðli. Morgunmatinn tók ég á Yosinaya, þetta japanska beikonkarrý… öss!

Við skoðuðum þá eitt merkilegasta shrine hérna í Tokyo, Meiji shrine-ið sem byggt var til heiðurs Meiji keisara japans sem stuðlaði að opnun japan fyrir vestrinu. Tori hliðið fyrir framan þetta shrine er úr einhverju 1500 ára gömlu tré og er mjög tilkomumikið. Meiji varð keisari japans aðeins 14 ára gamall og náði 45 ára aldri. Hann var elskaður og dáður í landinu öllu og var duglegur að rúnta um landið og heilsa upp á fólkið í landinu og biðja fyrir því.

Meðan við vorum á staðnum voru tvö brúðkaup í gangi í einum hluta af svæðinu þarna og við sáum alla hersinguna marsera yfir plássið fyrir framan shrine-ið í tvígang.

Yoyogi park virtist vera lokaður meðan við vorum á svæðinu svo við splittuðum upp og ég ráfaði um og skoðaði mig um í Harajuku á meðan þær fóru í búðarráp. Hádegismaturinn var kjúklingasamloka á Lotteria sem er svona einskonar eftirlíking af mcdonalds nema bara nokkuð gott á bragðið og þeir nota kjúkling í stað nautakjöts.

Því næst litum við aftur við á brúnni þar sem einhverjar GothLolis voru búnar að koma sér fyrir en voru bara fúlar á móti þegar maður vildi taka af þeim myndir. Við héldum þá heim á leið, en stoppuðum stutt því við fórum fljótlega út aftur til þess að virða fyrir okkur útsýnið af 45.hæð í Tokyo Metropolitan Building /Tokyo City Hall, smelltum nokkrum myndum og rétt á meðan við fórum upp í liftunni hvarf sólin og það var allt orðið dimmt, sem var ekkert endilega verra.

Á leiðinni heim fengum við okkur að borða á 270Yen JR staðnum (ég held hann heiti hreinlega 270Yen). Á þessum stað setjast allir við borð og matseðillinn er spjaldtölva sem þú pantar af matinn og sendir þráðlaust inn í eldhús. Allt meira og minna á japönsku en við kröfsuðum okkur í gegnum þetta. Stelpurnar fengu sér laxa nigiri og ég fékk mér grísakjötspinna og okunumiyaki! Þá fer ég að verða búinn að prófa allt matarkyns nema Octopus balls og góðar ramen núðlur.

Ég skrapp svo í kvöld í Yodobashi og keypti mér minniskortalesara og skoðaði í minna stressi úrvalið hjá þeim, sem er ÓTRÚLEGT.

Á morgun er förinni heitið til Osaka þar sem við munum gista meðan við verðum að skoða Kyoto.

Tokyo – Dagur 5 – Ueno…
Þennan dag vöknuðum við frekar seint þar sem það var rigning í kortunum. Hérna er veðurspáin eitthvað sem þú tekur mark á, allir sem við mættum fyrri part dags þegar veðrið var skaplegt voru með regnhlífar sem kom svo í ljós að voru nauðsynlegar síðar um daginn

Stefnan var tekin á Tokyo National Museum í Ueno, en safnið er í Ueno park þar sem má finna nokkur shrine, dýragarðinn og fleiri söfn. Við byrjuðum á að ganga í gegnum garðinn þar sem nokkur sakura (cherry blossom) tré voru farin að blómstra og undir einhverjum þeirra sátu japanir í pikknikk með bjór og svoleiðis í Hanami (Flower Viewing / Cherry blossom party). Meðfram nokkrum stígum slúttu trén yfir og svo héngu svona lampar meðfram gangstígum.

Tjörnin og svæðið fyrir framan safnið var í endurnýjun svo það var ekki eins picturesque og það hefði getað verið.

Tokyo National Museum

Safnði samanstendur af 5 byggingum, í einni þeirra var special exibition í gangi sem við sáum ekki og ein þeirra var lokuð vegna endurbóta. Við eyddum mestum tíma í Honkan (aðalbyggingin), en það er japanska gallerýið og þar má finna marga hluti sem voru ýmist merktir þjóðargersemar (national treasure) eða important cultural property. Mér fannst sverðin, brynjurnar og eeeeeldgömlu handritin tilkomumest en þetta veitti smá innsýn í listasögu Japan. Við skoðuðum líka Horyuji bygginguna og munina þar sem eru til sýnis 319 hlutir sem allir koma úr sama búddista hofinu í Nara, Horyu-Ji.

Uppstillingin í þessum hluta safnsins fannst mér ansi mögnuð, en það má sjá dæmigert herbergi í vídjóinu.

Ueno Zoo

Þegar við komum út af safninu voru allir orðnir glor og rigningin sem búið var að spá var byrjuð. Við römbuðum inn á pizza stað við hliðina á dýragarðinum þar sem ég fékk mér pizzu með reyktum kjúkling og lauk. Ég sá að einhverjir þarna voru að dýfa pizzunni í sósu sem ég hélt fyrst að væri majones en það kom í ljós að þetta var einhverskonar horse radish eða wasabi sósa sem kom gríðarvel út með pizzunni.

Við fórum því næst í dýragarðinn til þess að sjá risapöndurnar sem hafa af og til verið í heimsfréttunum. Þessir bangsar eru ekkert smá fyndnir, liggja á bakinu og kjamsa á bambus laufum. Fleiri dýr sem mér fannst áhugaverð var Slow Loris nashyrningarnir, Pygmy flóðhestarnir, mörgæsirnar, Súmötru tígurinn og mauraætan.

Eftir dýragarðsrúntinn fundum við stað sem mælt var með á japanican.com sem heitir Yayoken. Þar eru hlutirnir eldaðir á heitri teppan plötu sem þú færð svo á borðið. Ég fékk mér mix plate, Emilía nautakjöt og andrea fékk sér sveppa og beikon súpu með 4 mismunandi sveppum. Maturinn þarna var alveg hrikalega góður, eiginlega besti kvöldmatur sem ég hef fengið síðan við komum. Það sem kom á disknum mínum voru beikon bitar, niðursneitt nautakjöt, kjúklingur í skinninu, hamborgarakjöt með mayonesi og til hliðar var einskonar teryaki sósa, miso súpa og hrísgrjón (sem voru með ókeyips áfyllingu).

Japan – Dagur 4…
Tsukiji Fish Market

Smá fróðleikur um Tsukiji fiskmarkaðinn (fengið að láni á netinu): 2500 tonn af sjávarfangi að andvirði u.þ.b. Fimm milljón pund af fiski eru seld þarna á degi hverjum fyrir að andvirði 28 milljón USD. Markaðurinn þekur 57 ekrur og yfir 1500 sölubása. Það vinna 60þús manns á markaðinum og nota u.þ.b. 32þúsund farartæki. Við komum þarna fyrir 9 um morguninn þar sem við treystum okkur ekki í að vakna og vera mætt klukkan 4:30 í túnfisks uppboðið! Eins margar tegundir af fiski og meððí hef ég aldrei nokkurntíma séð. Það var allt á fullu, lyftarar að rúnta þarna um mjög þrönga gangana að passa sig að keyra ekki utan í neitt. Sumir að selja í smærra magni, aðrir bara að taka til en allstaðar sem maður leit var fiskurinn annað hvort lifandi eða svo gott sem.

Fiskmarkaðurinn í Tsukiji

Sushi queue

Þarna á svæðinu fæst ferskasta og besta sushi í heiminum (segja fróðustu menn). Við töluðum við nokkra sem voru í röðinni fyrir framan stað sem ku vera sá besti í heimi hvorki meira nét minna og voru þeir búnir að bíða í röð í tæpa tvo tíma og áttu eftir að bíða í klukkutíma í viðbót.

Kolkrabbi til sölu á markaðinum (nei ég breytti ekki litunum, hann var svona fáránlega rauður!)

Við fórum aðeins innar í næstu götu við þar sem var verið að hleypa inn í hollum, og nota bene, þessir staðir eru að taka max 15 manns í sæti, við drifum okkur í röðina og þegar það kom að okkur kom í ljós að Emilía gat ekki komið með okkur inn nema að panta sér sett 1 eða 2 en hún var með svo slæmt munnangur að hún treysti sér ekki í sushi-ið. Svo varð úr að ég fór inn til að borða og svo ætlaði andrea að fara á eftir mér.

Í röðinni var maður sem sagði mér allt um þennan stað sem á víst að vera síðan 1942, hann taldi upp þá hluti sem ég ætti að borða í japan og sagði mér aðeins frá sögu fiskmarkaðsins. Ég valdi mér set b sem voru 12 bitar “special kind” eins og stóð á mislukkaða enska spjaldinu. Bitarnir voru mjög spes, 2 túnfisksbitar með hnausþykkum sneiðum og litlum nigiri kodda undir, smokkfiskur, lúða, makríll og eitthvað sem ég kann ekki að nefna. Auk þess voru 3 litir maki bitar með túnfiski, ein nori-karfa full af hrísgrjónum og ígulkeri og önnur full af þorskinnyflum. Bitarnir voru sumri spes en á heildina mjög mjög góðir utan þessa þorsks gúmmelaðis sem ég hreinlega skildi eftir ! Andrea ákvað svo að sleppa þessu eftir lýsingarnar og við héldum til Ginza.

Ginza – Sony building

Í Ginza eru ansi margar merkjavörubúðir og þá ekki með ódýrustu merkjunum. Þar má líka finna Sony bygginguna og þangað fórum við, vorum heilaþvegin til þess að horfa á PanAm þættina sem sony framleiðir því þeir séu svo æðislegir, sáum allt það nýjasta í vídjóvélum, myndavélum, sjónvörpum, þrívíddarskjáum og fleira sem má vænta frá sony á íslandi eftir nokkur ár. Það sem mér fannst skemmtilegast var innbyggður skjávarpi í vídjóvélinni, þú gast þá látið vélina standa á borði og varpað vídjóinu upp á vegg (sjá vídjó).

Akihabara

Akihabara í ljósaskiptunum

Eftir Ginza var stímið tekið til Akihabara sem er mekka anime aðdáenda og leikjafríka, tölvuleikjasalir, pachenko salir, anime búðir og maid café í bland við raftækjabúðir galore! Maid kaffi eru kaffihús þar sem þjónarnir eru klæddir sem … Maids og það er eitthvað svona þema á hverjum stað, þessar þernur ganga víst oft ansi langt í hlutverki sínu og þær eiga það til að mata gestina o.s.frv. Við létum til leiðast til þess að leyfa Emilíu að prófa þetta, tókum við spjaldi hjá einni sem var að smala inn gestum af götunni og eltum hana á kaffihúsið. Miðarnir sem hún dreifði voru prentaðir heima hjá einhverri þeirra og hún leiddi okkur inn í húsasund þar sem við fórum á bak við aðalgötuna og inn í lyftu sem var teppalögð að innan (já, nei…. hún var teppalögð að innnan, VEGGIRNIR) og það hafði ekki verið vandað til verksins. Þegar upp var komið var okkur komið fyrir á skólabekk, physically… bekkir og kennaratafla og alles þar sem var farið yfir reglur staðarins, engar myndatökur etc. Við fórum svo yfir á borð og fengum að vita c.a. hvað hlutirnir kostuðu og að það væri borðagjald og það þyrftu allir að panta fyrir eitthvað lágmark… þá létum við okkur hverfa.

Raftækjabúðirnar voru sumar hverjar að selja mjög sérhæfða hluti eða þá allt milli himins og jarðar og þá á tveimur til níu hæðum! Ég fann til að mynda nokkrar búðir sem seldu bara þétta, eina sem seldi bara dælur í fiskabúr og enn aðra sem seldi bara hátalaravíra.

Eftir töluvert labb og margar búðir fórum við og fundum Kisukaffihúsið JaLaLa Neko Café sem er kaffihús þar sem þú getur komið og slappað af eftir annasaman dag, fengið þér kaffi eða te og leikið við kisur á meðan eða klappað þeim eða whatever. Þeir eru með norska skógarketti, main coon og persneska auk þessa hefðbundna heimiliskattar (svona af þeim tegundum sem ég þekkti). Þarna voru kisuleikföng í rekkum og kisur út um allt! Sofandi í hillum, labbandi um o.s.frv. þetta var mjög súrealískt en engu að síður skemmtilegt

Leikjaspilarar í Akihabara.

Kvöldmaturinn var tekinn á stað hérna við hliðina á hótelinu sem heitir Ooze Charm með mynd af svíni í lógóinu. Maturinn var mjög góður, ég fékk mér nautakjöt, kjúkling og lax á spjóti, hæfilega mikið grillað og meðlætið alltaf jafn gott.

Capsule hotel

Þegar við vorum komin heim frá Akihabara var fullkomið tækifæri fyrir mig að láta verða af því að gista á skúffuhóteli (e. Capsule hotel). Skúffuhótel eru starfrækt á nokkrum stöðum í Japan og það eru allavega tvö hérna í nágrenni við Shinjuku station. Flest bjóða aðeins karlmönnum upp á gistingu og er aðal markhópurinn menn sem hafa misst af síðustu lestinni og þurfa gistingu yfir nóttina. Þetta eru án efa minnstu hótelherbergi í heimi, þ.e. bara dýna og lofthæðin ekki meiri en svo að hægt er að skríða inn í “skúffuna” frekar þægilega. Í skúffunni er sjónvarp, vekjaraklukka og útvarp.

Á leið minni á skúffuhótelið gekk ég í gegnum rauða hverfið í Tokyo, Kabukichó þar sem svartir menn gerðu aðsúg að mér og reyndu að koma mér í kynni við japanskar meyjar, einn gekk svo langt að bjóða mér hvaða þjóðerni sem er. Þeir höfðu þó ekki erindi fyrir erfiði enda ég á hraðferð á skúffuhótel

Þar sem ég var fyrst og fremst að gera þetta til þess að upplifa eitthvað traditional og eftirminnilegt og upplýsingarnar á svæðinu voru bara á japönsku varð ég bara að fylgjast með hvernig menn báru sig að. Ég byrjaði á því að fara úr skóm og sokkum, setja það í þar til gerðan skáp og tékka mig svo inn á hótelið. Við það fékk ég handklæði og yakuta slopp og þunnar kvartbuxur. Fyrsta mál á dagskrá var að fara úr öllum fötunum og í þennan útbúnað, þramma svo á táslunum upp á næstu hæðir.

Hótelið spannaði fjórar hæðir (4, 5, 6, 7) á efstu hæðinni var afslöppunarherbergi og hvíldaraðstaða, ekki ósvipað hvíld í leikskóla, þar lágu nokkrir á dýnum með lítil skilrúm á milli sín og hvíldu sig í einu stóru herbergi. Á 6. hæð var bað aðstaða, heit laug, köld laug, heitir pottar úti, djakúsí, 4 mismunandi gufur, japanskt skrúbb, sturtuaðstaða og fleira, á 5. hæð var hægt að panta sér að borða og drekka, lesa blöðin og horfa á sjónvarp, kínverkst fótanudd, hómópatameðferð, nálastunga, full body massage, oil therapy og kírópraktor.

Skúffugangurinn

Þegar ég var búinn að skanna svæðið fylgdi ég fordæmi þeirra sem voru greinilega ekki þarna í fyrsta skipti og fékk mér smá bita og bjórglas, Asahi extra cold (Mummi: hann var serveraður í 500ml glasi með klaka, trúlega hefur hann verið u.þ.b. 1,5 gráða og þ.a.l. gríðarlega frískandi. Mjög líkur Asahi Dry, eiginlega alveg eins).

Eftir bjórinn fór ég upp á 6. hæð og vippaði mér úr öllu, fékk smá þvottapoka til þess að hylja hið allra heilagasta þó það hafi nú ekki allir verið í því þrátt fyrir að þarna störfuðu konur á mörgum stöðum. Við tók að þvo sér fyrir böðin og gufuna, og sem fyrr fylgdi ég fordæmi þeirra sem voru á svæðinu. Japanir leggja mikið upp úr hreinlæti og það sást klárlega þarna. Þeir nota frekar grófa en þunna klúta til þess að þvo sér með, helst sitjandi á einskonar plast kollum og sturta sig með handsturtu. Til staðar voru allskonar sápur, sjampó, hárnæring og raksápur, einnota sköfur og tannburstar. Þegar ég var búinn að þvo mér betur en ég hef nokkruntíma gert tók við rúntur í gegnum gufuböð með himalaya salti, myntu og fleiru, heitir og kaldir pottar, og með heitir pottar þá meina ég þannig að þeir voru sumir eins og heitasti potturinn í laugardalnum! Ég sá á röltinu einhverja menn sem voru í skrúbbi, þar sem þéttar japanskar konur sápuðu þá í drasl, pökkuðu þeim svo inn í 10 handklæði og létu gutla vatn yfir þá þangað til þeir voru alveg spikk og span!

Aftur í sturtu og rakstur, í sloppinn, fór í næsta herbergi og gat þar þurrkað á mér hárið, fengið allskonar hair tonic, skin lotion, gel og svoleiðis, hélt svo niður aftur og fór í full body massage. Nuddið var alveg gríðargott en öðruvísi en það sem ég hef prófað áður en það var alltaf handklæði milli nuddarans og í mín. Sultuslakur eftir nuddið fékk ég glas af límónaði til þess að hressa mig við og þá var dottið inn tilboð á veitingastaðnum (þetta var um 1:20 um nóttina) og tilboðið hljómaði upp á 3 mjólkurglös af 3 mismunandi bjórum. Ég stóðst ekki mátið og settist með hinu liðinu og fletti í manga sögublaði með bjórsmakkið mitt (Asahi Dark, Kirin Dark og Lövenbrá týpa einhver).

Skúffan mín

Þegar öllu þessu var lokið hélt ég niður um eina hæð og fann skúffu númer 4050. Ég varð að liggja nánast alveg við vegginn með höfuðið til þess að komast fyrir í skúffunni enda trúlega ekki hannað fyrir fólk hærra en 160cm. Ég dró fyrir tjaldið, rúllaði í gegnum sjónvarpsstöðvarnar sem voru í boði, stillti vekjarann og steinsofnaði á næfurþunnu tjalddýnunni með koddann sem var ekki mikið stærri en hefðbundinn snakkpoki að stærð   Þessi upplifun er eitthvað sem er alveg óhætt að mæla með við hvern sem er að heimsækja Tokyo í lengri eða skemmri tíma!

(panorama úr skúffunni)

Tokyo – Dagur 3
Í dag ferðuðumst við um Tokyo með innfæddum Tokyo-búa, henni Noriko Shigehara á vegum TokyoFreeGuide sem er sjálfboðaliðaþjónusta fólks sem vill æfa enskuna sína eða almennt kynna útlendinga fyrir japanskri menningu og Tokyo. Dagurinn hófst á því að reyna að kaupa miða á Studio Ghibili safnið en það er víst mjög erfitt að komast þar að sem við komumst svo að í dag þegar við reyndum að kaupa miða í dag, morgun, hinn og hinn og ekkert til. Við brugðum þá á það ráð að kaupa miða fyrir laugardaginn í næstu viku þegar við snúum aftur frá Hiroshima. Morgunmaturinn var tekinn á kaffihúsakeðjunni Doutor en þar fengum við cherry blossom latte, samlokur og ótæpilegt magn af sígarettureyk í kaupbæti.

Það borgaði sig aldeilis að hafa hana Noriko með í för í dag þar sem við þurftum að leysa út JR Rail passana okkar og panta sæti í byssukúlulestina til Osaka, Hiroshima og svo aftur til Tokyo. Þetta var alveg klukkutíma ferli og næstu vikur eru víst mjög mikið bókaðar þar sem það eru frí í skólum í næstu viku í Japan.

Hokkiado Food Festival

Fyrsta stopp hjá Noriko var að kynna okkur fyrir alvöru traditional japönskum mat (jibbí!) en hún lumaði á upplýsingum um einskonar food festival og kynningu á mat frá Hokkiado sem er næst stærsta eyja Japans. Stemmingin var svolítið svona sambland af kolaportinu og útimarkaði, það voru allir að bjóða fólki að smakka og seldu svo vöruna sína. Við smökkuðum meðal annars skelfisk í wasabi (sjá vídjó) og smokkfisk með ígulkerjasósu, kartöflubollur fylltar með svínahakki, japansk/belgískar súkkulaðikökur, rækjur og sushi með reyktum makríl. Þetta var alveg gríðarlega skemmtilegt og ég gæti alveg hugsað mér að renna þarna hring aftur og prófa ALLT.

Traditional Tea Ceremony

Næsta stopp var á Hótel Okura þar sem við hittum fyrir TeaMaster sem fór með okkur í gegnum stuttu útgáfuna af Te Seremóníu þar sem byrjað var á því að pjúrifæ-a sig með því að ausa yfir hendurnar á sér vatni úr þar til gerðri ausu. Svo fór hún með okkur yfir sögu þessara te athafna, hver hugsunin á baki tehúsinu væri, hvernig þetta væri uppbyggt og fleira. Svo var hápunkturinn þegar hún blandaði fyrir okkur grænt te eftir öllum kúnstarinnar reglum (sjá vídjó). Við fengum svo að kíkja í tjörnina hjá þessu hóteli sem geymir einhverja þá stærstu Koi gullfiska sem ég hef séð! Þetta voru alveg örugglega 20pundarar!

Heiroku Sushi

Að te athöfninni lokinni komum við við á Sushi train stað sem Noriko mælti með og ég skal segja ykkur að þetta sushi var something else! (sjá vídjó) Það var bara eitthvað við hrísgrjónin og fiskurinn var svo bragðgóður, übergott! Emilía lét sushið vera að mestu og fékk sér af matseðlinum einskonar hrísgrjónadeig klatta á prjóni, ég man ekki hvað þeir kallast.

Honda showroom og Asimo

Við heilsuðum upp á Asimo vélmennið hjá Honda en hann leikur listir sínar tvisvar á dag í Honda Show-room-inu sem er annars fullt af nýjustu bílunum frá Honda, sem ég er nokkuð viss um að hafi allir verið rafmagns/bensínbílar en auðvitað fyrir japansmarkað svo þeir hétu fáránlegum nöfnum eins og ROOM og FREED. Það er alveg magnaðað sjá þetta vélmenni hlaupa/í kraftgöngu! (sjá vídjó)

Kiddyland Tokyo

Við enduðum svo daginn okkar með Noriko á því að fara og skoða listasýningu nemenda við skóla nálægt Harajuku og því næst í Kiddyland sem er leikfangabúð með óhefðbundnu sniði skulum við segja, þarna er Hello Kitty, Snoopy og fleiri fígúrur ásamt anime leikföngum og svoleiðis í forgrunni. Ég hugsa að heildartíminn þarna inni hafi verið um 1,5 tímar.

Deginum lauk svo hjá okkur í Harajuku þar sem Emilíla fann sitt annað heimili innan um Goth Lolitu búðirnar og þessa skrítnu kjóla og trúðabúninga sem ég kýs að kalla. Það var svo ótrúlegt magn af búðum að selja Cosplay búninga þarna að því verður ekki lýst í orðum.

Kvöldmaturinn var tekinn á Sanuki Udon HANAMARU þar sem við fengum okkur skammt af Udon núðlum (takk Bjarki!) Udon núðlurnar eru svona feitar núðlur sem eru eldaðar í vatni, og svo dýft í kjötsoð áður en þeim er slengt í skál og yfirleitt poached egg sett yfir, smá grænmeti og svo notar fólk út á þetta tempura fisk, soya og einskonar rice crispies kurl.

Doutor snæðingur

Udon núðlurnar í Harajuku

Engrish 2

Asimo vélmennið

Japan – Dagur 2
Annar dagurinn hófst með kjarngóðum japönskum morgunverði. Við fylgdum hjörðinni sem lak út um syðri innganginn á Shinjuku station og af þeim voru margir á leiðinni á stað hérna í grenndinni. Það er frekar óalgengt á þessum stöðum að finna matseðla á ensku svo maður bendir á myndir og fær svo gott eða slæmt surprise   Ég skál með hrísgrjónum og kartöflum og beikoni í karrýsósu og þetta var svo þvílíkt gott! Úff! Stelpurnar fengu hrísgrjón með öðrum sósum og kjöti.

Áhugaverð auglýsing í lestinni

Leiðin lá þá til Asakusa þar sem við skoðuðum Sensi-Ji hofið og nágrenni þess, Dempoin street og búddahof sem er þarna á sama svæði. Svæðið var stappfullt af Japönum sem gengu að brunni fullum að reykelsi og mokuðu yfir sig reiknum og hneigðu sig, aðrir köstuðu peningum í þar til gerða kassa og enn aðrir hristu bauka og fengu einhver kærleiksorð á blaði í skiptum.

Inngangurinn að hofinu

Það gaf sér á tal við mig eldri maður, japanskur sem vildi ræða við mig um innreið vestrænnar menningar í Japan, hversu dýrmætur tíminn væri og hve löndin væru að byrja að kynnast þar sem tungumálaörðugleikar færu minnkandi. Hann vissi hvar Ísland var og var forviða á því að íslendingar kynnu almennt ensku. Þetta spjall varði öruglega í 10 mín eða þangað til hann hvarf á brott þegar ég ætlaði að fá að smella mynd af honum.

Við fórum þá til Shibuya og byrjuðum stoppið þar á því að týnast inni í völdunarhúsinu sem Shibuya station er og villtumst inn í verslunarmiðstöð og fundum svo loksins útganginn og hittum þar Haicho, sem er stytta af hundi sem á að hafa beðið eftir húsbónda sínum á þessum stað á hverjum degi, en einn daginn þegar húsbóndinn lést og kom því ekki beið Haicho eftir honum og beið og beið og dokaði og dokaði. Við sáum hið fræga Shibuya crossing sem eru fáránlega busy gatnamót og ráfuðum svo þar um búðir fram að kvöldmat sem var tekinn á Yakitori staðnum sem gengur meira og minna út á eitt langt grill þar sem grillaðir eru pinnar með öllu mögulegu (sjá vídjó). Við fengum m.a. pinna með beikonvöfðum aspas, kjúklingavængjum, quale-eggjum, nautakjöti í wasabi, nautasteik, hnetum og hinum og þessum pörtum af kjúklingnum, saynomore. Þetta var alveg þokkalegt þó eftir á hefði hugsanlega verið sniðugra að velja pinnana í staðinn fyrir að fá svona mikið surprise

Aðeins meira búðarráp m.a. í Apple store og H&M og eftir það tókum við lestina heim og villtumst á leiðinni!

Emilía í kvöldmat

Engrish!!!!

Eina litla kók í plasti, 100ml!